Kvika banki hf. – verðmat 1.1.2025

Helstu forsendur

  • Vaxtamunur heildarfjármagns nemur 3,3% á spátíma.
  • Hreinar þóknunartekjur vaxa að meðaltali um 5,6% á ári á spátíma.
  • Meðalávöxtun skuldabréfa nemur 8% á ári árin 2025-2026 en síðan 6,5% út spátíma, þar af færist 1-2% sem gangvirðisbreyting með hreinum fjármunatekjum á árunum 2025-2056 en síðan 0,5% á ári út spátíma. Vaxtaþáttur skuldabréfa færist með hreinum vaxtatekjum.
  • Meðalávöxtun hlutabréfa nemur 12% á ári á spátíma.
  • Kostnaðarhlutfall nemur að meðaltali 61,2% á ári á spátíma.
  • Virðisrýrnun á móti útlánum nemur 0,4% á ári á spátíma.
  • Til greiðslu kemur sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki sem nemur 0,145% af heildarskuldum í árslok umfram 50 ma.kr. að frádreginni skattskuld.
  • Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma og er reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu af hlutdeildarfélögum og hlutabréfum en auk þess er reiknaður sérstakur fjársýsluskattur sem nemur 6,0% af skattskyldum hagnaði bankans yfir 1 ma.kr.
  • Útlán til viðskiptavina vaxa að meðaltali á ári um 6,9% á spátíma.
  • Verðbréfaeign vex um 5,6% að meðaltali á ári á spátíma.
  • Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
  • Arðgreiðslur og endurkaup eigin bréfa nema 37 ma.kr. á árinu 2025 í kjölfar sölu á TM, uppgjör sölunnar miðast við byrjun árs 2025. Arðgreiðslur nema svo 70% á ári af heildarafkomu móðurfélags fyrra árs út spátíma, tekið er mið af markmiði bankans um arðgreiðslur og eiginfjárhlutfall.
  • Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4% sem samsvarar 1% raunvexti.
  • Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
  • Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.

Niðurstöður

  • Að gefnum forsendum er virði á hlut 20,1 kr. miðað við 1.1.2025.

Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

Kvika banki hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 18.2.2025.