Tilgangur

Með piltur.is er verið að auðvelda fjárfestum að gera sér grein fyrir virði einstakra fyrirtækja sem skráð eru á hlutabréfamarkaði á Íslandi.

5. ágúst 2026

Á piltur.is má nú finna uppfærðan samanburð á afkomu bankanna fyrir árin 2021–2025.

Á næstu vikum verða birt uppfærð samanburðaryfirlit fyrir önnur fyrirtæki innan sömu atvinnugreinaflokka, unnin með sama hætti.

Í byrjun árs 2027, samhliða birtingu ársuppgjöra fyrirtækja, verða núverandi verðmatsgreiningar einstakra fyrirtækja uppfærðar með hliðsjón af ársreikningum fyrir rekstrarárið 2026.

Jafnframt er bent á Facebook-síðuna Piltur, sem hægt er að fylgja. Þar eru birtar upplýsingar um nýtt efni og uppfærslur á vefnum.

Þorgils Óttar Mathiesen

Eldri skilaboð

Um verðmat

Verðmat einstakra fyrirtækja byggir á tíu ára afkomuspá, unninni á nafngrunni og núvirðingu hennar. Afkoma umfram/undir ávöxtunarkröfu er núvirt og bætt við eigið fé í uppphafi spátímabils sem er þá virði viðkomandi fyrirtækis (e. residual income valuation).

Afkomuspáin tekur mið af reynslutölum úr ársreikningum fyrri ára, leiðsögn stjórnenda ef hún er fyrir hendi í ársreikningum og öðru kynningarefni og almennum rekstrarhorfum að mati greinanda. Ekki er gert ráð fyrir verulegum breytingum á rekstri viðkomandi fyrirtækis á spátímabilinu. Sú forsenda er jafnframt gefin að stöðugleiki og jafnvægi ríki í efnahagsmálum landsins.

Við núvirðingu á afkomu er notuð 10% nafnarðsemiskrafa til eigins fjár í öllum tilfellum, horft er til áhættulausra vaxta þ.e. ríkisbréfa til lengri tíma með álagi. Metinni áhættu fjárfesta í einstökum fyrirtækjum að öðru leyti er þá mætt með afslætti á núvirtu verði þeirra.

Afkomuspá og verðmat sem birt er á vefsíðu þessari er almenns eðlis og felur á engan hátt í sér ráðgjöf til fjárfestis um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga, sjá fyrirvara.