Eimskipafélag Íslands hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Rekstrartekjur vaxa um 6,5% á árinu 2025 en síðan um 5,5% á ári út spátíma.
- EBITDA nemur 13% á ári á spátíma.
- Afskriftir rekstrarfjárm., leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nema 16,5% á ári á spátíma.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns nemur 5,6% á ári á spátíma, fjármögnun er að mestu í EUR.
- Arðsemi bókfærðs eignarhluta í hlutdeildarfélögum nemur 15% á ári á spátíma.
- Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma og er reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu af hlutdeildarfélögum.
- Fjárbinding í rekstrarfjármunum, leigueignum og óefnislegum eignum fylgir tekjuvexti sem samsvarar 10% fjárfestingu í hlutfalli af rekstrartekjum á ári.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 47% af heildarafkomu móðurfélags fyrra árs á árinu 2025 en síðan 65% út spátíma. Miðað er við að eiginfjárhlutfall sé um 45%.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4,5% eða 1,5% raunvöxtur.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 422,7 kr. miðað við 1.1.2025 (EUR 1 = ISK 144).
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Eimskipafélag Íslands hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 14.3.2025.