Arion banki hf. – verðmat 1. janúar 2025

Niðurstaða verðmats

Virði hlutar þann 1. janúar 2025 er 216,7. Verðmatið byggir á núvirtri afkomuspá fyrir tímabilið 2025-2034. Afgangstekjuaðferð er notuð við núvirðingu og 10% nafnarðsemiskrafa gerð til eigins fjár. Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4,0% sem samsvarar 1,0% raunvexti.

Hækkun á virði á hlut frá fyrra ári skýrist af …

Helstu forsendur í afkomuspá

  • Vaxtamunur heildarfjármagns er 2,9% á árinu 2025, en 2,8% á árinu 2026 og út spátíma.
  • Hreinar þóknunartekjur vaxa um 5,6% á ári.
  • Samsett hlutfall í tryggingarstarfsemi: 94%.
  • Ávöxtun skuldabréfa: 8% (2025-26), síðan 6,5% á ári; 1-2% gangvirðirsbreyting í byrjun tímabils, síðan 0,5%.
  • Ávöxtun hlutabréfa: 12% á ári.
  • Kostnaðarhlutfall (rekstrarkostnaður / kjarnatekjum): 47% að meðaltali.
  • Virðisrýrnun: 0,4% af útlánum á ári.
  • Tekjuskattur er 20% (að frádreginni afkomu hlutdeildarfélaga og hlutabréfa), fjársýsluskattur 6% af skattalegum hagnaði yfir 1 ma.kr. og sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 0,145% af heildarskuldum yfir 60 ma.kr.
  • Hlutdeild minnihluta óverulegur, því sleppt.
  • Vöxtur útlána: 5,6% á ári.
  • Arðgreiðslur: 60% af heildarafkomu fyrra árs 2025, hækkar í 65% árlega frá 2026.
  • Tekið er mið af markmiði bankans um arðgreiðslur og eiginfjárhlutfall.

    Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

    Arion banki hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 16.2.2025.