Kvika banki hf. – verðmat 1.1.2026

Niðurstaða verðmats

  • Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 17,4 kr.
  • Verðmatið byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 4% eilífðarvexti í lok spátímans (1% raunvöxtur).
  • Lækkun á virði frá fyrra mati skýrist af arðgreiðslu á árinu 2025, en hagnaður ársins og aðrar breytingar á forsendum vega að hluta upp á móti þeirri lækkun.

Helstu forsendur

  • Vaxtamunur heildarfjármagns er 3,4% árið 2026 en lækkar í 3,2% frá og með 2028 og helst óbreyttur út spátímann.
  • Hreinar þóknunartekjur vaxa að meðaltali um 5,7% á ári.
  • Ávöxtun skuldabréfa er 6,5-7,5% á ári á spátímanum, þar af færist 0,5% sem breyting á gangvirði með hreinum fjármunatekjum. Vaxtaþáttur skuldabréfa færist í hreinar vaxtatekjur.
  • Ávöxtun hlutabréfa er 12% á ári en lausafjársjóða 6–7%, sem hvort tveggja telst hreinar fjármunatekjur.
  • Kostnaðarhlutfall fer lækkandi er að meðaltali 61,2%.
  • Virðisrýrnun nemur 0,3% af útlánum á ári.
  • Tekjuskattur er 20% (að frádreginni afkomu hlutdeildarfélaga og hlutabréfa), fjársýsluskattur 6% af skattalegum hagnaði yfir 1 ma.kr. og sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 0,145% af heildarskuldum yfir 60 ma.kr.
  • Vöxtur útlána er 6,8% að meðaltali á ári.
  • Arðgreiðslur árið 2026 nema 24% af heildarafkomu móðurfélagsins á fyrra ári. Árið 2027 verða greiddar 15 millj. kr. vegna sterkrar eiginfjárstöðu, en eftir það nema arðgreiðslur 65% af heildarafkomu út spátímann.
  • Hlutdeild minnihluta er óveruleg og er því sleppt.
  • Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.

Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

Kvika banki hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 24.2.2026)