Heimar hf. – verðmat 1.1.2026

Niðurstaða verðmats

  • Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 48,2 kr.
  • Verðmatið byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 3% eilífðarvexti í lok spátímans eða enginn raunvöxtur.
  • Hækkun á virði frá fyrra mati skýrist af afkomu ársins 2025.

Helstu forsendur

  • Leigutekjur hækka um 8,8% árið 2026 sem er í samræmi við áætlun stjórnenda og hækka eftir það árlega í takt við neysluverðsvísitölu.
  • Rekstrarkostnaður nemur 32% af rekstrartekjum á spátímanum.
  • Matsbreyting fjárfestingaeigna nemur 3–4% á ári og er í takt við hækkun neysluverðsvísitölu.
  • Meðalfjármagnskostnaður lánsfjár nemur 7%, lánsfé er í íslenskum krónum og ber 3,75% verðtryggða vexti.
  • Arðsemi bókfærðs eignarhluta í hlutdeildarfélögum nemur 15% á ári.
  • Tekjuskattur nemur 20% og reiknast af hagnaði að frádreginni afkomu hlutdeildarfélaga. Hann færist sem skattskuldbinding en kemur ekki til greiðslu á spátímanum vegna uppsafnaðs taps og fyrninga.
  • Fjárfestingar í fjárfestingaeignum eru engar á spátímanum.
  • Arðgreiðslur nema 9,5% af heildarafkomu fyrra árs árið 2026 en 80% eftir það, eiginfjárhlutfall nemur að jafnaði um 34% á spátímanum.
  • Aðrar almennar forsendur eru undir “Verðmat”.

Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

Heimar hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 27.2.2026)