Sjóvá-Almennar tryggingar hf. – verðmat 1.1.2026
Niðurstaða verðmats
- Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 53,6 kr.
- Verðmat byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 4% eilífðarvexti í lok spátíma (1% raunvöxtur).
- Hækkun á virði frá fyrra mati skýrist af afkomu ársins 2025.
Helstu forsendur
- Tekjur af vátryggingastarfsemi vaxa að meðaltali um 5,7% á ári á spátíma (2,4% raunvöxtur).
- Tjóna- og endurtryggingahlutfall er 75%.
- Kostnaðarhlutfall er að jafnaði 20,5% á ári.
- Meðalávöxtun skuldabréfa er 7,5% á ári árin 2026-2027 en 6,5% eftir það. Meðalávöxtun hlutabréfa nemur 12% á ári á spátíma.
- Við útreikning á fjármagnsliðum vátryggingasamninga á spátíma er miðað við 3% vexti á ári á skuldbindingu í upphafi hvers árs.
- Tekjuskattur er 20% af hagnaði að frádreginni afkomu hlutabréfa. Auk þess leggst 6% fjársýsluskattur á skattalegan hagnað umfram 1 ma.kr.
- Hlutfall hlutabréfa af verðbréfaeign er 33%.
- Skuldbinding vegna vátryggingasamninga nemur 115% af tekjum.
- Arðgreiðslur nema 53% af heildarafkomu fyrra árs árið 2026 en 70% eftir það.
- Gjaldþolshlutfall er á bilinu 1,4-1,7, í samræmi við markmið Sjóvá.
- Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 2.3.2026)
