Arion banki hf. – verðmat 1.1.2026
Niðurstaða verðmats
- Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 264,3 kr.
- Verðmatið byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 4% eilífðarvexti í lok spátímans (1% raunvöxtur).
- Hækkun á virði frá fyrra mati skýrist af afkomu ársins 2025 og breyttum forsendum í nýrri spá, einkum hvað varðar vaxtamun, kostnaðarhlutfall og virðisrýrnun.
Helstu forsendur
- Vaxtamunur af meðalstöðu heildarfjármagns er 3% árið 2026 en lækkar í 2,8% frá og með 2028 og helst óbreyttur út spátímann.
- Hreinar þóknunartekjur vaxa að meðaltali um 5,7% á ári.
- Tekjur af vátryggingasamningumum vaxa að meðaltali um 5,7% á ári.
- Í tryggingastarfsemi nemur samsett hlutfall 93%.
- Ávöxtun skuldabréfa er 6,5-7,5% á ári á spátímanum, þar af færist 0,5% sem breyting á gangvirði með hreinum fjármunatekjum. Vaxtaþáttur skuldabréfa færist í hreinar vaxtatekjur.
- Ávöxtun hlutabréfa er 12% á ári.
- Kostnaðarhlutfall er að meðaltali 45%.
- Virðisrýrnun nemur 0,3% af útlánum á ári.
- Tekjuskattur er 20% (að frádreginni afkomu hlutdeildarfélaga og hlutabréfa), fjársýsluskattur 6% af skattalegum hagnaði yfir 1 ma.kr. og sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 0,145% af heildarskuldum yfir 60 ma.kr.
- Vöxtur útlána er 5,7% að meðaltali á ári.
- Arðgreiðslur nema 49% af heildarafkomu móðurfélags fyrra árs árið 2026, en 65% út spátímann.
- Hlutdeild minnihluta er óveruleg og er því sleppt.
- Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Arion banki hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 19.2.2026)
