Eik fasteignafélag hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Leigutekjur vaxa um 7% á árinu 2025 en síðan til samræmis við hækkun neysluverðsvísitölu eða 3,0% á ári út spátíma. Horft er til áætlunar stjórnenda hvað varðar vöxt 2025.
- Rekstrarkostnaður á móti rekstrartekjum nemur 36% að meðaltali á ári á spátíma.
- Matsbreyting fjárfestingaeigna nemur hækkun neysluverðsvísitölu eða 4% á árinu 2025 og síðan 3% á ári út spátíma.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns á ári miðast við 3,5-4,0% verðtryggða vexti sem gerir 6,5-7,5% nafnvexti á ári á spátíma, fjármögnun er í íslenskum krónum.
- Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma. Hann færist sem skattskuldbinding, en enginn tekjuskattur kemur til geiðslu á spátíma vegna skattalegs taps fyrri ára og skattalegrar fyrningar.
- Engar fjárfestingar eru í fjárfestingareignum á spátíma.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 52,4% af heildarafkomu fyrra árs á árinu 2025 en síðan 80% frá árinu 2026 og út spátímann en miðað er við að eiginfjárhlutfall sé um 33%.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 3% eða enginn raunvöxtur.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 16,4 kr. miðað við 1.1.2025.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Eik fasteignafélag hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 22.2.2025.