Eldri skilaboð

12. febrúar 2026

Á piltur.is hafa nú verið birtar tvær uppfærðar verðmatsgreiningar miðað við 1. janúar 2026, byggðar á ársreikningum félaganna fyrir árið 2025. Um er að ræða greiningar á Festi hf. og Icelandair Group hf.

Á næstu vikum munu birtast verðmatsgreiningar á yfir tuttugu skráðum félögum í Kauphöll Íslands, unnar í kjölfar ársuppgjöra þeirra fyrir árið 2025.

Vakin er athygli á Facebook-síðunni Piltur, þar sem greint er frá nýju efni á vefnum.


25. ágúst 2025

Á piltur.is hafa nú birst fimm samanburðaryfirlit yfir afkomu fyrirtækja síðustu fimm árin innan sama atvinnugreinaflokks.

Í byrjun árs 2026 verða núverandi verðmatsgreiningar einstakra fyrirtækja uppfærðar m.t.t. ársreikninga ársins 2025 og jafnvel fleiri greiningar birtar.

Vakin er athygli á Facebook síðunni Piltur sem hægt er að fylgja en þar er upplýst um nýtt efni á vefnum.


30. júní 2025

Til viðbótar við verðmatsgreiningar skráðra fyrirtækja í kauphöll á íslandi birtist nú á piltur.is yfirlit með samanburði á afkomu þriggja banka síðustu fimm árin á síðunni „Samanburður.“

Á næstu vikum munu fleiri slík samanburðaryfirlit fyrirtækja innan sama atvinnugreinaflokks birtast á vefnum.

Vakin er jafnframt athygli á Facebook síðunni Piltur sem hægt er að fylgja en þar er upplýst um nýtt efni á vefnum.

 

30. maí 2025

Nú hafa verðmatsgreiningar tuttugu og tveggja skráðra fyrirtækja í kauphöll á Íslandi, byggðar á ársuppgjörum fyrir árið 2024, verið birtar á vefnum piltur.is. Viðtökur hafa verið góðar, takk fyrir það!

Fleiri verðmatsgreiningar verða ekki birtar byggðar á ársuppgjörum 2024 en í byrjun árs 2026 verða núverandi greiningar uppfærðar m.t.t. ársreikninga ársins 2025 og jafnvel fleiri greiningar birtar.

Ekki er útilokað að eitthvað annað efni verði birt á piltur.is á næstu mánuðum sem verður þá tilkynnt á Facebook síðunni Piltur sem hægt er að fylgja og var sett upp í þeim tilgangi að upplýsa um nýtt efni á vefnum.

 

11. febrúar 2025

Ég hef undanfarin ár haft það áhugamál að verðmeta skráð fyrirtæki á íslenskum hlutabréfamarkaði. Meðvitaður um skort á upplýsingum og umræðu um verðmat fyrirtækja, hef ég ákveðið að opna þennan vef, piltur.is. Á honum birti ég verðmatsgreiningar unnar í kjölfar ársuppgjöra umræddra fyrirtækja.