Festi hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Vöru- og þjónustusala vex um 6,1% að meðaltali á ári á spátíma.
- Framlegð sölu nemur að meðaltali 23,5% á ári á spátíma.
- Rekstrarkostnaður á móti sölu nemur 16,5% á ári á spátíma.
- Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nemur 9,8% á ári á spátíma.
- Fjárfestingaeignir eru endurmetnar í samræmi við árlega hækkun neysluverðsvísitölu eða um 4% á árinu 2025 en síðan 3% á ári frá 2026 og út spátíma.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns er 9% á árinu 2025 en síðan 7% á ári frá 2026 og út spátíma sem samsvarar 4% verðtryggðum vöxtum, fjármögnun er í íslenskum krónum.
- Arðsemi bókfærðs eignarhluta í hlutdeildarfélögum nemur 17% á ári á spátíma.
- Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma og er reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu af hlutdeildarfélögum.
- Hlutfall sölu á móti bókfærðum rekstrarfjármunum, leigueignum og óefnislegum eignum (án viðskiptavildar) fer úr 2,6 í 3,2 á spátíma. Fjárfesting í hlutfalli af sölu á ári lækkar því á spátíma, fer úr 5,1% í 4,2%.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 34,9% af heildarafkomu fyrra árs árið 2025 en síðan 70%, miðað er við að eiginfjárhlutfall sé um 40%.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4,5% sem samsvarar 1,5% raunvexti.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 243,4 kr. miðað við 1.1.2025.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Festi hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 11.2.2025.