Festi hf. – verðmat 1.1.2026
Niðurstaða verðmats
- Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 302,5 kr.
- Verðmat byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 4,5% eilífðarvexti í lok spátíma (1,5% raunvöxtur).
- Hækkun á virði frá fyrra mati skýrist af afkomu ársins 2025 og hærri framlegð í nýrri spá.
Helstu forsendur
- Vöru- og þjónustusala vex að meðaltali um 5,7% á ári (2,4% raunvöxtur).
- Framlegð er 25% fyrri hluta spátíma en 24% síðar.
- Annar rekstrarkostnaður nemur 17% af sölu.
- Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nema 9,8% á ári.
- Fjárfestingaeignir eru endurmetnar í takt við hækkun vísitölu neysluverðs, 3-4%.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjár er 7,2%, fjármögnun í íslenskum krónum.
- Hlutdeildarfélög skila 18% arðsemi af bókfærðu eigin fé hlutdeildar og greiða um 70% hagnaðar sem arð.
- Tekjuskattur er 20%, reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu hlutdeildarfélaga.
- Hlutfall sölu á móti rekstrar-, leigu- og óefnislegum eignum (án viðskiptavildar) hækkar úr 2,8 í 3,2 á spátíma, sem endurspeglar betri nýting. Fjárfesting sem hlutfall af sölu nemur að meðaltali 4,6%.
- Arðgreiðslur nema 34,8% af heildarafkomu fyrra árs árið 2026, en 80% eftir það, miðað við eiginfjárhlutfall um 40%.
- Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Festi hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 12.2.2026)
