Hampiðjan hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Rekstrartekjur (sala) vaxa að meðaltali um 10% á árunum 2025-2027 en síðan um 5,5% á ári út spátíma.
- Framlegð í hlutfalli af rekstrartekjum nemur að meðaltali 30,1% á ári á spátíma.
- Rekstrarkostnaður nemur 17,5% af rekstrartekjum á ári á spátíma.
- Rekstrarfjármunir og óefnislegar eignar (án viðskiptavildar) afskrifast um 7,4% á ári á spátíma.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns nemur 5,6% á ári á spátíma, fjármögnunin er að mestu í EUR.
- Arðsemi bókfærðs eignarhluta í hlutdeildarfélögum nemur 15% á ári á spátíma.
- Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma og er reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu af hlutdeildarfélögum og hlutabréfaeign.
- Fjárbinding í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án viðskiptavildar) fylgir tekjuvexti. Á spátíma nemur fjárfestingin 8,2% í hlutfalli af rekstrartekjum að meðaltali á ári.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 52,5% af heildarafkomu fyrra árs á árinu 2025 en svo 70% á ári á spátíma, miðað er við að eiginfjárhlutfall sé um 50%.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 5% eða 2% raunvöxtur.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 86,2 kr. miðað við 1.1.2025 (EUR 1 = ISK 144).
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Hampiðjan hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 19.3.2025.