Iceland Seafood International hf. – verðmat 1.1.2025

Helstu forsendur

  • Rekstrartekjur vaxa um 5,6% að meðaltali á ári á spátíma.
  • Vergur hagnaður í hlutfalli af sölu nemur 15,2% á ári á spátíma.
  • Rekstrargjöld í hlutfalli af rekstrartekjum nema 11% á ári á spátíma.
  • Afskriftir rekstrarfjárm., leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nema 11,5% á ári á spátíma.
  • Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns nemur 5,6% á ári á spátíma, fjármögnunin er að mestu í EUR.
  • Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma.
  • Fjárbinding í rekstrarfjármunum, leigueignum og óefnislegum eignum (án viðskiptavildar) fylgir tekjuvexti.
  • Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
  • Engar arðgreiðslur koma til greiðslu á árinu 2025 en frá og með árinu 2026 nema þær 65% af heildarafkomu móðurfélags fyrra árs á ári út spátíma. Eiginfjárhlutfall nemur 30% í lok spátíma.
  • Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4% eða 1% raunvöxtur.
  • Sjá aðrar almennar forsendur undir “Verðmat”.
  • Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.

Niðurstöður

  • Að gefnum forsendum er virði á hlut 3,8 kr. miðað við 1.1.2025 (EUR 1 = ISK 144).