Icelandair Group hf. – verðmat 1.1.2026

Niðurstaða verðmats

  • Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 1,77 kr. (USD 1 = ISK 125).
  • Verðmat byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 4% eilífðarvexti í lok spátíma (1% raunvöxtur).
  • Virði hlutar er nánast óbreytt frá fyrra mati.

Helstu forsendur

  • Rekstrartekjur vaxa að meðaltali um 5,2% á ári (1,9% raunvöxtur).
  • EBIT er 2% árið 2026 og hækkar í 5% frá og með 2030 út spátíma.
  • Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nema 16% á ári.
  • Meðalfjármagnskostnaður lánsfjár er 6,6%, fjármögnun að mestu í USD.
  • Hlutdeildarfélög skila 12% arðsemi af bókfærðu eigin fé hlutdeildar og greiða um 70% hagnaðar sem arð.
  • Tekjuskattur er 20%, reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu hlutdeildarfélaga.
  • Fjárbinding í rekstrarfjármunum, leigueignum og óefnislegum eignum (án viðskiptavildar) fylgir tekjuvexti, árleg fjárfesting nemur 12,8% af tekjum.
  • Arðgreiðslur nema 40% af heildarafkomu móðurfélags fyrra árs frá og með 2031.
  • Eiginfjárhlutfall hækkar úr 15,4% í árslok 2025 í 27,2% í árslok 2035.
  • Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.

Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

Icelandair Group hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 12.2.2026)