Ísfélagið hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Rekstrartekjur nema 202 milljónum USD á árinu 2025 og aukast því um 18% frá fyrra ári en síðan um 3% á ári út spátíma eða í samræmi við breytingu á neysluverðsvísitölu.
- Framlegð sölu nemur að meðaltali 36% á ári á spátíma að teknu tillit til áforma um hækkun veiðigjalds.
- Rekstrarkostnaður nemur 6,5% af rekstrartekjum á ári á spátíma.
- Rekstrarfjármunir afskrifast um 10% á ári á spátíma.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns nemur 5,6% á ári á spátímann, fjármögnunin er að mestu í USD og EUR.
- Arðsemi bókfærðs eignarhluta í dóttur- og hlutdeildarfélögum nemur 10% á ári fyrstu fimm árin á spátíma og svo 12% á ári.
- Bókfærðar aflaheimildir í upphafi spátíma eru endurmetnar árlega í gegnum í heildarafkomu sem nemur hækkun neyslverðsvísitölu. Um er að ræða frávik frá núverandi reikningsskilum fyrirtækisins.
- Tekjuskattur sem kemur til greiðslu nemur 20% á ári á spátíma og er reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu af dóttur- og hlutdeildarfélögum og endurmati aflaheimilda. Endurmat aflaheimilda er að teknu tilliti til tekjuskatts sem færist á skattskuldbindingu.
- Fjárfesting í rekstrarfjármunum tekur mið af því að viðhalda raunvirði þeirra á spátíma.
- Ekki er gert ráð fyrir kaupum á aflaheimildum á spátíma.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 129,1% af heildarafkomu fyrra árs á árinu 2025 en svo 95% á ári á spátíma. Eiginfjárhlutfall nemur 61% í lok spátíma.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 3% eða enginn raunvöxtur.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir “Verðmat”.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 125,8 kr. miðað við 1.1.2025 (USD 1 = ISK 138).
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Ísfélagið hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 11.4.2025.