Íslandsbanki hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Vaxtamunur heildarfjármagns er 2,9% á árinu 2025 en lækkar síðan í 2,8% á árinu 2026 og út spátíma.
- Hreinar þóknunartekjur vaxa að meðaltali um 5,6% á ári á spátíma.
- Meðalávöxtun skuldabréfa nemur 8% á ári árin 2025-2026 en síðan 6,5% út spátíma, þar af færist 1-2% sem gangvirðisbreyting með hreinum fjármunatekjum á árunum 2025-2026 en síðan 0,5% á ári út spátíma. Vaxtaþáttur skuldabréfa færist með hreinum vaxtatekjum.
- Meðalávöxtun hlutabréfa nemur 12% á ári á spátíma.
- Kostnaðarhlutfall er 46% á ári á spátíma.
- Til greiðslu kemur sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki sem nemur 0,145% af heildarskuldum í árslok umfram 50 ma.kr. að frádreginni skattskuld.
- Virðisrýrnun á móti útlánum nemur 0,4% á ári á spátíma.
- Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma og er reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu af hlutdeildarfélögum og hlutabréfum en auk þess er reiknaður sérstakur fjársýsluskattur sem nemur 6,0% af skattskyldum hagnaði bankans yfir 1 ma.kr.
- Útlán til viðskiptavina vaxa að meðaltali á ári um 5,6% á spátíma.
- Aðrar efnahagsstærðir fylgja útlánavexti eða eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 50% af heildarafkomu fyrra árs árið 2025 en síðan 60% út spátíma, tekið er mið af markmiði bankans um arðgreiðslur og eiginfjárhlutfall.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4% sem samsvarar 1% raunvexti.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 119,4 kr. miðað við 1.1.2025.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Íslandsbanki hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 16.2.2025.