Nova Klúbburinn hf. – verðmat 1.1.2025

Helstu forsendur

  • Rekstrartekjur vaxa um 4,5% að meðaltali á ári á spátíma.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nemur að meðaltali 29,5% á ári á spátíma.
  • Afskriftir rekstrarfjárm., leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nema 22,5% á ári á spátíma.
  • Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns á ári er 6,2% á spátíma, þ.m.t. v/leiguskulda, fjármögnun er í íslenskum krónum.
  • Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma.
  • Fjárbinding í rekstrarfjármunum, leigueignum og óefnislegum eignum (án viðskiptavildar) dregst aðeins saman í byrjun spátíma en fylgir annars tekjuvexti. Fjárfesting í hlutfalli af rekstrartekjum að meðaltali á ári á spátíma nemur 17,6%, án leigueigna nemur hún 12,4%.
  • Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
  • Arðgreiðslur nema 37,2% af heildarafkomu fyrra árs á árinu 2025 en síðan 90%. Eiginfjárhlutfall nemur 43,5% í lok spátíma.
  • Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4% sem samsvarar 1% raunvexti.
  • Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
  • Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.

Niðurstöður

  • Að gefnum forsendum er virði á hlut 4,1 kr. miðað við 1.1.2025.

Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

Nova Klúbburinn hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 3.4.2025.