Reitir fasteignafélag hf. – verðmat 1.1.2026
Niðurstaða verðmats
- Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 138,7 kr.
- Verðmatið byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 3% eilífðarvexti í lok spátímans eða enginn raunvöxtur.
- Hækkun á virði frá fyrra mati skýrist af afkomu ársins 2025.
Helstu forsendur
- Leigutekjur hækka um 8,5% árið 2026 sem er í samræmi við áætlun stjórnenda og hækka eftir það árlega í takt við neysluverðsvísitölu.
- Rekstrarkostnaður nemur 33% af rekstrartekjum á spátímanum.
- Matsbreyting fjárfestingaeigna nemur 3–4% á ári og er í takt við hækkun neysluverðsvísitölu.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjár nemur 6,8%, lánsfé er í íslenskum krónum og ber 3,6% verðtryggða vexti.
- Tekjuskattur nemur 20%. Hann færist sem skattskuldbinding en kemur ekki til greiðslu á spátímanum vegna uppsafnaðs taps og fyrninga.
- Fjárfestingar í fjárfestingaeignum eru engar á spátímanum.
- Arðgreiðslur nema 33% af heildarafkomu fyrra árs árið 2026 en 75% eftir það.
- Eiginfjárhlutfall er að jafnaði um 31,5% á spátímanum.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Reitir fasteignafélag hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 19.3.2026)
