Sjóvá-Almennar tryggingar hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Tekjur af vátryggingastarfsemi vaxa að meðaltali um 5,6% á ári á spátíma sem samsvarar 2,4% raunvexti.
- Tjóna- og endurtryggingahlutfall nemur að meðaltali 74,5% á ári á spátíma.
- Í vátryggingastarfsemi nemur kostnaðarhlutfall að meðaltali 20,5% á ári á spátíma.
- Meðalávöxtun skuldabréfa nemur 8% á ári árin 2025-2026 en síðan 6,5% út spátíma. Meðalávöxtun hlutabréfa nemur 12% á ári á spátíma.
- Við útreikning á fjármagnsliðum vátryggingasamninga á spátíma er miðað við 3,6% vexti á ári á skuldbindingu í upphafi hvers árs.
- Virkur tekjuskattur nemur að meðaltali um 11% á ári á spátíma en lægri tekjuskattur en gildandi skatthlutfall skýrist af óskattskyldum tekjum af hlutabréfum.
- Hlutfall hlutabréfa af verðbréfaeign nemur 33% á spátíma.
- Skuldbinding vegna vátryggingasamninga í hlutfalli af tekjum nemur 115% á spátíma.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 80% af heildarafkomu fyrra árs árið 2025 en síðan 70%, miðað er við að gjaldþolshlutfall sé á bilinu 1,4 til 1,7 á spátíma eða í samræmi við markmið Sjóvá.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 4% eða 1% raunvöxtur.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir “Verðmat”.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 52,4 kr. miðað við 1.1.2025.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 11.2.2025.