Sjóvá-Almennar tryggingar hf. – verðmat 1.1.2026

Niðurstaða verðmats

  • Virði hlutar þann 1. janúar 2026 er metið á 53,6 kr.
  • Verðmat byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og 4% eilífðarvexti í lok spátíma (1% raunvöxtur).
  • Hækkun á virði frá fyrra mati skýrist af afkomu ársins 2025.

Helstu forsendur

  • Tekjur af vátryggingastarfsemi vaxa að meðaltali um 5,7% á ári á spátíma (2,4% raunvöxtur).
  • Tjóna- og endurtryggingahlutfall er 75%.
  • Kostnaðarhlutfall er að jafnaði 20,5% á ári.
  • Meðalávöxtun skuldabréfa er 7,5% á ári árin 2026-2027 en 6,5% eftir það. Meðalávöxtun hlutabréfa nemur 12% á ári á spátíma.
  • Við útreikning á fjármagnsliðum vátryggingasamninga á spátíma er miðað við 3% vexti á ári á skuldbindingu í upphafi hvers árs.
  • Tekjuskattur er 20% af hagnaði að frádreginni afkomu hlutabréfa. Auk þess leggst 6% fjársýsluskattur á skattalegan hagnað umfram 1 ma.kr.
  • Hlutfall hlutabréfa af verðbréfaeign er 33%.
  • Skuldbinding vegna vátryggingasamninga nemur 115% af tekjum.
  • Arðgreiðslur nema 53% af heildarafkomu fyrra árs árið 2026 en 70% eftir það.
  • Gjaldþolshlutfall er á bilinu 1,4-1,7, í samræmi við markmið Sjóvá.
  • Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.