Sýn hf. – verðmat 1.1.2026

Niðurstaða verðmats

  • Virði hlutar 1. janúar 2026 er metið á 17,1 kr.
  • Verðmatið byggir á núvirtri afkomuspá fyrir árin 2026-2035, með 10% nafnarðsemiskröfu á eigið fé og engum eilífðarvexti í lok spátíma.
  • Lækkun á virði frá fyrra mati skýrist af lækkun rekstrartekna í nýrri spá.

Helstu forsendur

  • Rekstrartekjur vaxa að meðaltali um 3,9% á ári (0,7% raunvöxtur).
  • Launakostnaður (brúttó) sem hlutfall af rekstrartekjum er 28,5% á spátíma.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nemur að meðaltali 23,4% á ári á spátíma.
  • Afskriftir rekstrarfjármuna, leigueigna og óefnislegra eigna (án viðskiptavildar) nema 25% á ári.
  • Meðalfjármagnskostnaður lánsfjár er 6%, annars vegar 8% vextir af lánum frá lánastofnun og hins vegar 5% reiknaðir vextir af leiguskuld, fjármögnun er í íslenskum krónum.
  • Hlutdeildarfélag skilar 14% arðsemi af bókfærðu eigin fé hlutdeildar og greiðir um 40% hagnaðar sem arð.
  • Tekjuskattur er 20%, reiknaður af hagnaði að frádreginni afkomu hlutdeildarfélags.
  • Fjárfesting (þ.m.t. leigueignir samkvæmt IFRS 16) sem hlutfall af rekstrartekjum nemur að meðaltali 19%.
  • Enginn arður er greiddur á spátíma.
  • Eiginfjárhlutfall hækkar á spátímanum en er að meðaltali 30%.
  • Aðrar almennar forsendur eru undir „Verðmat“.

Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.

Sýn hf. – afkomuspá 2026-2035 og verðmat m.v. 1.1.2026 (birt 12.3.2026)