Kaldalón hf. – verðmat 1.1.2025
Helstu forsendur
- Leigutekjur vaxa um 21% á árinu 2025 en síðan til samræmis við hækkun neysluverðsvísitölu eða 3,0% á ári út spátíma. Horft er til áætlunar stjórnenda hvað varðar vöxt 2025.
- Rekstrarkostnaður á móti rekstrartekjum nemur 23% á ári á spátíma.
- Matsbreyting fjárfestingaeigna nemur hækkun neysluverðsvísitölu eða 4% á árinu 2025 og síðan 3% á ári út spátíma.
- Meðalfjármagnskostnaður lánsfjármagns miðast við 4,0-4,9% verðtryggða vexti sem gerir 7,0-8,9% nafnvexti frá árinu 2025 og út spátíma, fjármögnun er í íslenskum krónum.
- Tekjuskattur nemur 20% á ári á spátíma. Hann færist sem skattskuldbinding en enginn tekjuskattur kemur til geiðslu á spátíma vegna skattalegs taps fyrri ára og skattalegrar fyrningar.
- Engar fjárfestingar eru í fjárfestingaeignum á spátíma.
- Aðrar efnahagsstærðir eru afleidd stærð af öðrum liðum í rekstri og efnahag.
- Arðgreiðslur nema 85% af heildarafkomu fyrra árs frá árinu 2026 og út spátímann en eiginfjárhlutfall nemur 33% í lok spátíma.
- Eilífðarvöxtur í lok spátíma er 3,0% eða enginn raunvöxtur.
- Sjá aðrar almennar forsendur undir „Verðmat“.
- Miðað er við 10% arðsemiskröfu á eigið fé við núvirðingu á afkomuspá, 2025-2034.
Niðurstöður
- Að gefnum forsendum er virði á hlut 26,9 kr. miðað við 1.1.2025.
Hér fyrir neðan má nálgast afkomuspá og verðmat í heild.
Kaldalón hf. – afkomuspá 2025-2034 og verðmat m.v. 1.1.2025 – birt 26.3.2025.